Kryddlegin Hjörtu
31.05.2006 12:46:17 / hjortu

Hey girlZ



Það verður matarboð hjá mér á Hjarðarhaganum á laugardaginn 10. júni. Matarboð/afmæli so to speak. Grillað á nýja grillinu.....

Allar að mæta elskurnar !!!

Eva



» 3 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 19:44:41 / hjortu

Ské

Hér er ekkert að gerast, en Matti biður að heilsa ykkur dömur og óskar ykkur góðrar Helga(r).

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 09:30:22 / snaedis

Indverskt Hjá Ingunni!

Jæja stúlkur mínar myndirnar frá seinasta mataboðinu eru komnar inn á svæðið okkar, Indverkt hjá Ingunni. Enjoy, hehe!!!

Kv Snædís :lol:


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 09:51:11 / hjortu

MATARHLÚBBUR HJÁ INGUNNI 11. MARS

Veislan fór í loft upp kl. 21 að staðartíma þótt svo að margir hafi tekið forskot á sæluna kvöldinu áður. Að sjálfsögðu mætti enginn á réttum tíma nema Snædís samviskusama sem er Fillippseyingur í aðra ættina og ætti því ekki að vera stundvísi í blóð borinn. En þarna sýndi hún og sannaði ágæti sitt sem óþolinmóður svangur Íslendingur sem þyrstir í guðaveigar með meiru. Gleðin var við völd þetta kvöldið og var drukkið allt frá tveggja ára gömlum landa, martini (Anna Þóra, Men, I feels like woman....) til Bacarci Breecers sem ætti nú ekki að vera rithæft...(stelpur þið segið ekki neinum). Upp úr 22 fór svo liðið að týnast inn, ein af annarri, hver öðrum glæsuilegri, tilefni til að skála og tískusýning sem sló Giselle, Heidi Klum og Naomi Campell öllum ref fyrir rass. Aðalumræðu efni kvöldsins voru skák, stjórnmál og hlutabréf. Gerður var ævilangur skriflegur samningur að við myndum aldrei hætta að reykja. Þessi formlegi matarklúbbur okkar er nú orðinn að svaðasta sukkbæli og hvet ég næsta gestgjafa um að hafa pulsur með öllu í matinn. Hátindur kvölsins var svo þegar við sungum og dönsuðum svo hátt við Dirty Dancing að gæjinn á neðri hæðinni er búin að setja í sölu.. Brotinn glös ci. 3

Áætluð koma niður í bæ hálf tvö, áætluð heimkoma...aldrei. Sunnudagur - dauði

Heyrst hefur.....

  • Að Eyrún sé orðinn Miss Sober og hefur tekið að sér verkefni sem leigubílstjóri það sem eftir lifir árs...
  • Að "hin glaða (graða)" og hin "reiða" hafi lent í orðaskiptum inn á Dillon. Áflog urðu þó enginn og hafa þær verið mestu mátar síðan þá...
  • Að afmælisbarnið hafi aldrei þessu vant ekki skilað neinum afmælisgjöfum...
  • Að Gunna og Anna Þóra hafi dansað inn á Dillon þangað til þær hurfu...Til hvorugrar þeirra hefur spurst síðan...
  • Að framvegis verði Ingunn höfð í keðju á milli Laugarvegs 18 og Laugarvegs 36. Ástæður kunnugar....
  • Að Birna hafi verið á mikilvægum fundi hjá húsmæðraskólanum í Portúgal. Tollsins er beðið með mikilli eftirvæntingu.....
  • Að Helga heits hafi verið það illa haldinn af edrúmennsku að hún hafi ekki getað hugsað sér að koma...
  • Að Íris hafi farið heim með Ásgeiri Kolbeins...Mun þetta vera þriðja helgin í röð sem þau fara saman heim og spurningin er hvort það sé einhver alvara í gangi...
  • Að nýjustu fréttir herma að aðeins tvær af stelpunum hafi ekki farið heim einar síns liðs....Stelpur þetta er lélegt....Þess má geta að þessar sömu tvær lentu í átökum fyrr um kvoldið.....Það er sexy að slást...
  • Að Sara Toscato hafi fengið sekt fyrir að pissa utan í Hæstarétt...Skamm Sara...

Líf of fjör

3 og 1/2 stjarna af fjórum mögulegum

Takk fyrir mig

Ingunn


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 02:29:13 / hjortu

hey girls!!!!

kasseigiði....Ég veit að enginn af ykkur veit enn af síðunni nema ég og Helga. Ég var bara að spá hver ætlaði að halda hitting í Apríl....það eru 2 eða 3 sem eiga eftir þannig að endilega allir að klára sinn skammt, er þaggi???? Svo bara verðum við duglegar að segja sögur af hvor annari hér á síðunni!!! Anýhús Sjáumst elsku rúsínurnar mínar ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 19:16:55 / hjortu

Enjoy

 

Þetta er mitt framlag.

 

 

♥ Helgs


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 18:39:24 / hjortu

Vei vei vei vei....komin síða fyrir okkur skvísurnar!!

"A la mesa y a la cama, una sola vez se llama" .....þetta eru upphafsorð bókarinnar Kryddlegin hjörtu sem matarklúbbur okkar dregur nafn sitt af. Í íslenskri þýðingu er þetta; Boð að borði og milli laka er boð sem ei skal endurtaka ;) Mér finnst þetta viðeigandi upphafsorð fyrir síðuna okkar líka!! Áfram með þetta stelpur, nú segjum við frá ævintýrum og ástum okkar á alnetinu....... Kossar og knús Eva a.k.a the stevster a.k.a stevo

» 0 hafa sagt sína skoðun